Ný skrifstofa skipulags- og byggingarmála í Húnavatnssýslum
11. október 2021
Laus eru til umsóknar embætti byggingarfulltrúa og embætti skipulagsfulltrúa á nýrri skrifstofu í
Húnavatnssýslum. Starfsstöðvar eru tvær, á Hvammstanga og Blönduósi og þjóna fulltrúarnir öllu svæðinu.
Einnig er auglýst eftir starfsfólki í tvær stöður, 50% starfshlutfall á hvorri starfsstöð með möguleika á
hærra hlutfalli. Um er að ræða fjölbreytt og áhugaverð störf í lifandi umhverfi.