Ráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna A-Hún.
30. janúar 2019
Stjórn Brunavarna A-Hún hefur ráðið Ingvar Sigurðsson sem slökkviliðsstjóra Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu og mun hann hefja störf, í fullu starfi, eigi síðar en 1. maí 2019.
Ingvar er löggiltur slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og hefur starfað í tæp 10 ár sem hlutastarfandi slökkviliðsmaður hjá Brunavörnum Árnessýslu 2009-2019 en starfar núna sem einn af fjórum vakthafandi varðstjórum slökkviliðsins, og sinnir þar bakvöktum og þjálfun. Einnig hefur hann starfað við sjúkraflutninga hjá HSu á árinu 2015.