Fréttatilkynning
28. september 2017
Vefsíða aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands opnuð
Kallað eftir verkefnum á dagskrá afmælisársins 22.9. 2017.
Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands verður fagnað á næsta ári með fjölbreyttri dagskrá um land allt. Opnuð hefur verið vefsíða afmælisársins á slóðinni www.fullveldi1918.is. Vefsíðan verður upplýsingasíða þar sem m.a. verður hægt að fylgjast með dagskrá afmælisársins og skrá verkefni á dagskrá afmælisársins. Á síðunni verður einnig að finna fróðleik um árið 1918 og fullveldishugtakið sem og námsefni fyrir skóla.