Heimilisfang: Efstubraut 5
Opnunartími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 15:00-17:30, laugardagar kl. 13:00-17:00
Sorphirða hjá sveitarfélaginu er með þeim hætti að tvær tunnur eru við hvert heimili í þéttbýli og dreifbýli. Önnur tunnan er fyrir almennt heimilissorp og hin tunnan er fyrir endurvinnsluefni. Tæming á tunnunum fer fram á þriggja vikna fresti allt árið um kring.
Terra annast sorphirðuna fyrir sveitarfélagið og býður einnig fyrirtækjum og rekstaraðilum ýmsar lausnir varðandi sorphirðu og ílát. Allar upplýsingar eru gefnar hjá Terra í síma 414-0200.
Urðunarstaður sveitarfélagsins er í Stekkjarvík í Austur-Húnavatnssýslu.
Handbók um gagnlegar upplýsingar um flokkun, endurvinnslu og sorphirðu í sveitarfélaginu.