Sumarfjör sumarið 2024

Dagskrá Sumarfjörs

Skráningarblað

Skemmtileg og fjölbreytt sumardagskrá þar sem börnum á aldrinum 6-9 ára og 10-12 ára stendur til boða að sækja námskeið í sumar. Um er að ræða Sumarfjör þar sem lögð er áhersla á leiki, skemmtun og fræðslu. Boðið er upp á íþróttir, leiki, listir, fræðslu, sundpartý og ýmislegt fleira.

Í sumar verða tveir hópar í Sumarfjöri.

Kl. 9-12 alla virka daga fyrir 6-9 ára börn (fædd 2015-2017).

Kl. 13-16 alla virka daga fyrir 10-12 ára börn (fædd 2012-2014).

Sumarfjör verður í 6 vikur. Byrjar mánudaginn 3.júní og endar föstudaginn 12.júlí.

Í facebook hóp Sumarfjörs, Sumarfjör í Húnabyggð verða settar inn allar upplýsingar t.d. ef einhverjar breytingar verða á dagskrá o.fl.

Gjaldskrá fyrir Sumarfjör sumarið 2024 er eftirfarandi:

1 vika 4.000 kr

2 vikur 6.000 kr

3 vikur 8.000 kr

4 vikur 10.000 kr

5 vikur 12.000 kr

6 vikur 14.000 kr

Systkinaafsláttur er 50% fyrir systkini sem eru skráð sömu vikuna í Sumarfjör.

Krafa mun birtast í heimabanka greiðanda.

Umsjón með Sumarfjöri: Yuliia Sergeevna Kolomoiets s: 626-9449 og Ingibjörg Signý Aadnegard s: 867-4519.

Netföng: yuliia@hunaskoli.is og signy@hunaskoli.is

Aðrir starfsmenn Sumarfjörs eru krakkar úr Vinnuskólanum.

Mæting alla daga er á skólalóð Húnaskóla, við endum alla daga þar líka, nema annað komi fram. Gert er ráð fyrir að allir mæti með hollt og gott nesti. (Gos, orkudrykkir og sælgæti er ekki leyfilegt). Gott að hafa með sér vatnsbrúsa líka.

Mikilvægt er að börnin séu klædd eftir veðri. Minnum á sólarvörn.

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?