Markmið með snjómokstri og hálkueyðingu er að minnka þau óþægindi sem snjór og ís veldur einstaklingum, fyrirtækjum og skólahaldi.
Reglur um snjómokstur í þéttbýli má sjá HÉR
Kort yfir snjómokstur í þéttbýli má sjá HÉR
- Upplýsingar um snjómokstur í dreifbýli:
- Vegna snjómoksturs er rétt að árétta að samkomulag er á milli Vegagerðar og Húnavatnshrepps um mokstur á snjó að tengi- og stofnvegum. Eru mokstursdagar 2 í viku hverri, eftir þörf í hvert og eitt sinn.
- Verktakar Vegagerðarinnar sem sjá um snjómokstur eru eftirfarandi:
- Óskar E. Ólafsson, Steiná II, sér um Svartárdal
- Óskar L. Guðmundsson, Eyvindarstöðum, sér um Blöndudal að austan og vestan.
- Sigurður Erlendsson, Stóru-Giljá, sér um Reykjabraut, Auðkúluveg og Svínvetningabraut
- Sigurður R. Magnússon, Hnjúki, sér um Vatnsdalsveg og Þing
- Við útfærslu á snjómokstri hefur verið lögð á það áhersla að opna fyrst þær leiðir sem skólabílar fara um. Að öðrum kosti er hver verktaki látin meta það í samráði við Vegagerðina hvort þörf sé á snjómokstri eða ekki.
- Ábendingar um þörf á snjómokstri: Sími 1777.