21. september 2017
Fréttir
Markmiðið með breytingunum er að gera upplýsingar aðgengilegri og miðla þannig betri upplýsingum til íbúa sveitarfélagsins og annarra áhugasamra. Undir flipunum Stjórnsýsla, Þjónusta og Mannlíf er að finna það er tengist stjórnkerfi og þjónustu sveitarfélagsins ásamt ýmsu sem varðar mannlífið.
Vefsíðan verður í stöðugri þróun, flestar upplýsingar eru komnar inn á nýju síðuna sem voru á eldri vefsíðunni en smátt og smátt munum við uppfæra og laga það sem betur má fara. Við hvetjum alla þá sem hafa góðar hugmyndir og ábendingar varðandi heimasíðuna til að hafa samband á netfangið katrin@blonduos.is