Dagskrá
Grímur Rúnar varaforseti sveitarstjórnar lagði til að liður 2 yrði felldur út af dagskrá og færast því dagskrárliðir upp. Samþykkt samhljóða.
1.Byggðarráð Húnabyggðar - 72
2408004F
Fundargerð 72. fundar Byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 41. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 2. 5 og 7 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með 9 atkvæðum samhljóða.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Sigurður Erlingsson ráðgjafi fór yfir sex mánaða uppgjör sveitarfélagsins sem sýnir að fjármál sveitarfélagsins er á réttri leið miðað við fjárhagsáætlun. Stefnt er að því að gera nákvæmt átta mánaða uppgjör þar sem mun sjást með meiri nákvæmni hver staðan er.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Byggðarráð hafnar tilboði sem borist hefur í leikskólabyggingu á Húnavöllum á þeim grundvelli að ekki hefur staðið til að selja eignina frá öðrum eignum á svæðinu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun Byggðarráðs samhljóða.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Byggðarráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að skoða málið nánar.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Byggðarráð felur fjallskilastjórum að koma með ítarlegri upplýsingar um málið.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Byggðarráð veitir erindinu jákvæða umsögn fyrir sitt leyti. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun Byggðarráðs samhljóða.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Byggðarráð samþykkir samhljóða að skipa sveitarstjóra í vinnuhóp sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem yfirlögregluþjónn embættis LNV mun leiða og skoða staðsetningar myndavéla í umdæminu.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Byggðarráð veitir erindinu jákvæða umsögn fyrir sitt leyti. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun Byggðarráðs samhljóða.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Byggðarráð felur sveitarstjóra að auglýsa refa- og minkaveiðar í sveitarfélaginu sem fyrst.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Lagt fram til kynningar.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Lagt fram til kynningar.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 72 Byggðarráð vísar umfjöllun um framlög til Tónlistarskólans til fjárhagsáætlunargerðar.
2.Fræðslunefnd Húnabyggðar - 16
2408006F
Fundargerð 16. fundar Fræðslunefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 41. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með 9 atkvæðum samhljóða.
3.Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar - 10
2408007F
Fundargerð 10. fundar Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 41. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með 9 atkvæðum samhljóða.
-
Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar - 10 Börkur Þór Ottósson, bygginga- og skipulagsfulltrúi Húnabyggðar, mætti á fundinn á Teams undir þessum lið og fór yfir yfirstandandi framkvæmdir við félagsmiðstöðina Skjólið og Íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Verið er að leggja nýtt gólf á íþróttamiðstöðina, setja upp nýja sánu í sundlauginni og gagngerar endurbætur hafa orðið á félagsmiðstöðinni Skjólinu á efri hæð félagsheimilisins að Húnabraut 6. Fyrirhugað er að umræddum framkvæmdum ljúki fyrir mánaðarlok. Þrátt fyrir að endurbætur í félagsmiðstöðinni Skjólinu séu umfangsmiklar er ljóst að þakið lekur og ekki hefur verið skipt um glugga að hluta. Nefndin leggur mikla áherslu á að framangreind atriði verði lagfærð sem fyrst svo þau skemmi ekki þær endurbætur sem þegar hafa átt sér stað.
Þá vill nefndin vekja athygli á því að flísarnar í sundlauginni eru byrjaðar að losna að hluta. Mjög nauðsynlegt er að hefja lagfæringar á því sem fyrst svo ekki þurfi að koma til lokunar á sundlauginni í vetur.
Nefndin fagnar þó framangreindum framkvæmdum og bindur vonir við að þær eigi eftir að gera aðstöðu barna og annarra íbúa sveitarfélagsins til íþrótta- og tómstundaiðkunar enn betri.
-
Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar - 10 Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar kynnti Heilsudaga í Húnabyggð sem haldnir verða frá 23. september nk. til og með 30. september nk. Dagskráin er styrkt af ÍSÍ og verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Nefndin fagnar þessu framtaki og hvetur alla íbúa sveitarfélagsins til þess að kynna sér dagskránna þegar hún liggur fyrir og taka þátt í þeim fjölmörgu viðburðum sem boðið verður upp á.
-
Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar - 10 Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar fór yfir starfið og dagskrá vetrarins í félagsmiðstöðinni Skjólinu. Á meðan framkvæmdir í fyrirhuguðu húsnæði Skjólsins standa yfir verður dagopnun Skjólsins á bókasafninu í Húnaskóla. Fullmannað er í allar stöður í félagsmiðstöðinni í vetur. Opnun í Skjólinu verður með samskonar sniði og undanfarin ár að undanskildum fyrsta mánuðinum á meðan húsnæðið er ekki klárt.
-
Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar - 10 Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar fór yfir starfið og dagskrá vetrarins í félagsstarfi aldraðra. Kristín upplýsti nefndarmenn um ráðningu nýrrar forstöðukonu félagsstarfs aldraðra í Húnabyggð, Vigdísi Eddu Guðbrandsdóttur. Opnunartími og dagskrá félagsstarfs aldraðra verður með svipuðu sniði og undanfarin ár en þó með nýjum áherslum með tilkomu nýs starfsfólks. Félagsstarfið mun hefjast í næstu viku. Nefndin vill koma á framfæri sérstökum þökkum til fráfarandi starfsfólks, Sigríði Hrönn Bjarkadóttur, Valdísi Finnbogadóttur og Sigþrúði Friðriksdóttur fyrir mikið og óeigingjarnt starf undanfarin ár og áratugi.
Þá sköpuðust umræður á fundinum um aðgengi að húsnæði félagsstarfsins og bílastæðaskort. Nefndin leggur til að leitað verði leiða til að fjölga bílastæðum og bæta aðgengi við húsnæðið
-
Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar - 10 Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar fór yfir tómstundastarf eldri borgara í vetur. Búið er að mynda stýrihóp sem skipuleggur dagskrá tómstundastarfsins. Búist er við því að dagskráin liggi fyrir í byrjun október.
-
Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar - 10 Samkvæmt 5. gr. samþykkta fyrir Ungmennaráð Húnabyggðar skal skipa fimm fulltrúa og fimm til vara í Ungmennaráð Húnabyggðar. Skulu tilnefningar í ráðið gilda frá 1. október til eins árs í senn. Nefndin felur íþrótta-, menningar og tómstundafulltrúa að kalla eftir tilnefningum í ráðið frá viðkomandi aðilum samkvæmt framangreindri samþykkt.
- 3.7 2310004 Áherslur íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefndar Húnabyggðar fyrir fjárhagsáætlunargerð 2024Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar - 10 Umræður sköpuðust um þennan lið á fundinum.
Áherslur íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefndar Húnabyggðar fyrir fjárhagsáætlunargerð eru eftirfarandi:
-
Áhersla verði lögð á gerð og uppbyggingu göngustíga innan sveitarfélagsins, fjölgun bekkja og kortlagningu á gönguleiðum.
-
Styrkir vegna uppbyggingar og endurbóta á íþróttamannvirkjum verði hækkaðir að nýju.
-
Sveitarfélagið stuðli að auknu framboði íþrótta í sveitarfélaginu, fyrir allan aldurshóp, t.d. í auknu samstarfi við nærliggjandi sveitarfélög.
-
Sveitarfélagið móti skýra framtíðarsýn um uppbyggingu á íþróttavellinum á Blönduósi og íþróttahúsinu á Blönduósi.
Nefndin felur formanni að koma framangreindum áherslum nefndarinnar til formanns byggðaráðs Húnabyggðar svo hægt verði að taka mið af þeim fyrir fjárhagsáætlunargerð 2025.
-
Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar - 10 Formaður lagði fyrir fundinn bréf frá Dansskóla Menningarfélags Húnaþings vestra. Í bréfinu er það rakið að dansskólinn hefði verið með námskeið á Blönduósi á vorönn 2024 og að áhugi væri fyrir því að endurtaka leikinn á vorönn 2025. Ástæða þessa bréfs nú væri áhugi foreldra á Blönduósi að vera með námskeiðið líka á haustönn 2024 en til þess vantaði fjármagn. Umræður sköpuðust um þennan lið. Nefndin telur mikilvægt að sveitarfélagið stuðli að auknu framboði íþrótta í sveitarfélaginu.
-
Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar - 10 Nefndin endaði fundinn á vettvangsferð í félagsmiðstöðina Skjólið og Íþróttamiðstöðina á Blönduósi.
4.Skipulags- og samgöngunefnd Húnabyggðar - 27
2408008F
Fundargerð 27. fundar Skipulags- og samgöngunefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 41. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 4 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með 9 atkvæðum samhljóða.
-
Skipulags- og samgöngunefnd Húnabyggðar - 27 Skipulags- og samgöngunefnd felur skipulagsfulltrúa að gera breytingu á skipulags- og matslýsingu í samræmi við umræður á fundinum.
-
Skipulags- og samgöngunefnd Húnabyggðar - 27 Nefndin fór yfir framlögð gögn og felur skipulags og- bygggingafulltrúa að vinna gögnin áfram og leggja fram á næsta fundi nefndarinnar. Bókun fundar Að loknu útboði er varðar snjómokstur í þéttbýli telur sveitarsjórn mikilvægt að í framhaldi verði snjómokstur í dreifbýli kortlagður.
-
Skipulags- og samgöngunefnd Húnabyggðar - 27 Nefndin felur skipulags og- bygggingafulltrúa að kostnarmeta afgirt svæði og koma með tillögur að staðsetningu.
-
Skipulags- og samgöngunefnd Húnabyggðar - 27 Nefndin samþykkir erindið og felur skipulags og-byggingafulltrúa að veita framkvæmdarleyfið. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir bókun Byggðarráðs.
5.Byggðarráð Húnabyggðar - 74
2409001F
Fundargerð 74. fundar Byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 41. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 4 og 7 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með 9 atkvæðum samhljóða.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 74 Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta klára hönnun á skiltunum þannig að hægt sé að setja þau upp.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 74 Byggðarráð felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að finna lausn á þessu í samráði við þá aðila sem svæðið nota.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 74 Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá samningi við Blönduóskirkju.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 74 Byggðarráð samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskrá og felur sveitarstjóra að uppfæra gjaldskránna og leggja hana fyrir sveitarstjórn Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun Byggðarráðs samhljóða.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 74 Byggðarráð felur sveitarstjóra að kanna hvort að hægt sé að fá fund með höfundum skýrslunnar með það fyrir augum að megin niðurstöður skýrslunnar verði kynntar.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 74 Lagt fram til kynningar.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 74 Byggðarráð skipar Ragnhildi Haraldsdóttur sem nýjan fulltrúa Húnabyggðar í Heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir samhljóða bókun byggðarráðs samhljóða.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 74 Lagt fram til kynningar.
-
Byggðarráð Húnabyggðar - 74 Byggðarráð samþykkir framlagað lagnaleið og veitir leyfi fyrir framkvæmdinni.
Fundi slitið - kl. 16:01.