Dagskrá
1.Menntamálastofnun -Ytra mat á leikskólanum Barnabæ
2001023
MMS- Ytra mat Barnabæjar - Rammi að umbótaáætlun.
2.Byggðasamlög - samþykktir
2003001
Byggðasamlög - samþykktir og útreikningar
Sveitarstjórn fór yfir samþykktir byggðarsamlaga sem lágu fyrir fundinum.
Umræður urðu um samþykktirnar og þróun kostnaðarþátttöku undanfarinna ára í byggðarsamlögunum og framtíð þeirra.
Sveitarstjórn vísar málinu til Byggðaráðs til frekari umfjöllunar og eftirfylgni.
Umræður urðu um samþykktirnar og þróun kostnaðarþátttöku undanfarinna ára í byggðarsamlögunum og framtíð þeirra.
Sveitarstjórn vísar málinu til Byggðaráðs til frekari umfjöllunar og eftirfylgni.
3.Lánasjóður íslenskra sveitarfélaga - afgreiðsla vegna láns
2003002
Erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna afgreiðslu láns.
Sveitarstjórn Blönduósbæjar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 110.000.000 kr., til 14 ára, í samræmi við lánstilboð sem liggur fyrir fundinum.
Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2 mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til þess að fjármagna m.a. viðbyggingu við Blönduskóla ásamt öðrum framkvæmdum í sveitarfélaginu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Valdimari O. Hermannssyni kt. 110660-3599, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Blönduósbæjar að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita, gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari.
Samþykkt af sveitarstjórn með 7 atkvæðum samhljóða.

4.Byggðaráð Blönduósbæjar - 157
2002006F
Fundargerð 157. fundar Byggðaráðs lögð fram til staðfestingar á 76. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 4.10 og 4.11 þarfnast sérstakrar afgreiðslu.
Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með 7 atkvæðum samhljóða.
Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með 7 atkvæðum samhljóða.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Lagt fram til kynningar.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Byggðaráð tekur undir umsögn SSNV við frumvarpið.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Með erindinu er óskað skýringa á því að þó áætlað sé að uppfylla ákvæði laga um jafnvægisreglu þá verði rekstarniðurstaða A-hluta neikvæð árin 2020-2022. Vísað til umræðu í sveitarstjórn. Bókun fundar Erindið var kynnt fyrir sveitarstjórn og sveitarstjóra falið að svara erindinu.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Vísað til umræðu í sveitarstjórn. Bókun fundar Erindið var kynnt fyrir sveitarstjórn og sveitarstjóra falið að svara erindinu.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Byggðaráð tekur undir erindið og vísar því til afgreiðslu Byggðasamlags um menningu og atvinnumál.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Bókun sveitarstjórnar Húnavatnshrepps ásamt minnisblaði með vangaveltum lögmanns um samþykktir byggðasamlags um Brunavarnir lagt fram til kynningar.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra óskar eftir umsögn Blönduósbæjar um umsókn frá Himinn sól ehf kt.590815-1010, um leyfi til að reka veitingastað í flokki II að Norðurlandsvegi 4, Blönduósi.
Með vísan til 4. mgr. 1. tl. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gistiheimili og skemmtanahald, þar sem sveitarstjórn er falið að veita umsögn um afgreiðslutíma og staðsetningu staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Byggðaráð gerir ekki athugasemd við leyfisveitinguna enda liggi fyrir jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila. -
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Byggðaráð fór yfir punkta frá ISAVIA er varða Blönduósflugvöll. Byggðaráð ítrekar mikilvægi flugvallarins og skorar á Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið að veita verkefninu 7.000.000 króna til þess að unnt verði að uppfylla kröfur um lágmarksaðbúnað á flugvellinum sem allra fyrst. Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Byggðaráð getur ekki orðið við styrkbeiðninni að þessu sinni.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Byggðaráð samþykkir að styrkja foreldrafélag Blönduskóla um 50.000 krónur. Færist af lið 0481-9991 Bókun fundar Afgreiðsla Byggðaráðs staðfest af sveitarstjórn Blönduósbæjar með 7 atkvæðum samhljóða.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Byggðaráð samþykkir að styrkja mótið um 30.000 krónur. Færist af lið 0689-9919. Bókun fundar Afgreiðsla Byggðaráðs staðfest af sveitarstjórn Blönduósbæjar með 7 atkvæðum samhljóða.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Lagðar fram til kynningar.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Lagt fram til kynningar.
-
Byggðaráð Blönduósbæjar - 157 Lagt fram til kynningar.
5.Fræðslunefnd Blönduósbæjar - 36
2002004F
Fundargerð 36. fundar Fræðslunefndar lögð fram til staðfestingar á 76. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með 7 atkvæðum samhljóða.
Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með 7 atkvæðum samhljóða.
-
Fræðslunefnd Blönduósbæjar - 36 Jóhanna G. Jónasdóttir leikskólastjóri fór yfir Ytra mat Barnabæjar sem Menntamálastofnun gerði fyrir leikskólann. Skýrslan kemur almennt vel út en unnið er að úrbótaáætlun vegna þeirra þátta sem betur mega fara. Þegar úrbótáætlun er lokið verður skýrslan birt á veg Menntamálastofnunnar.
-
Fræðslunefnd Blönduósbæjar - 36 Valdimar O Hermannsson sveitastjóri, fór yfir minnisblað um skólamötuneyti ásamt kosntaðaráætlun um að fullgera núverandi mötuneyti með tækjum og búnaði. Farið yfir kosti og galla við framleiðslu eldhús eða aðkeyptrar þjónustu. Skólastjóra og formanni fræðslunefndar falið að undirbúa könnun sem lögð verður fyrir foreldra um mögulega aukna þjónustu mötuneytis. Frekar verður fjallað um málið á næsta fræslunefndarfundi.
-
Fræðslunefnd Blönduósbæjar - 36 Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra og Önnu Margréti Jónsdóttir formanni fræðslunefndar falið að búa til drög að reglum um hvenær eigi að fella niður skólaakstur vegna veðurs / færðar. Verða þau drög lögð fyrir næsta fund fræðslunefndar.
6.Landbúnaðarnefnd Blönduósbæjar - 20
2002005F
Umræðum um fundargerðina frestað til næsta fundar þar sem nægileg gögn liggja ekki fyrir.
-
Landbúnaðarnefnd Blönduósbæjar - 20 Nefndin fór yfir lóðarleigusamning vegna Hvammsréttar í Langadal. Nefndin samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til sveitarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.
-
Landbúnaðarnefnd Blönduósbæjar - 20 Halldór Skagfjörð Jónsson hefur leitað til landbúnaðarnefndar um styrk til fjallskilasjóðs til drónakaupa sem nota mætti í fjárleitir. Nefndin tekur jákvætt það gegn því að gerður verði samningur við Halldór sem skuldbindi hann til að sinna ákveðnum verkefnum fjallskila. Fjallskilastjóra falið að útfæra það nánar.
7.Munnleg skýrsla sveitarstjóra
1901013
Skýrsla sveitarstjóra.
Valdimar O Hermannsson, sveitarstjóri, fór yfir stöðu ýmissa mála í sveitarfélaginu.
Skýrslan verður birt á vefsíðu sveitarfélagsins.
Skýrslan verður birt á vefsíðu sveitarfélagsins.
Fundi slitið - kl. 19:29.
Að loknum umræðum um áætlunina var hún borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum samhljóða.
Sveitarstjórn vísar áætluninni til Fræðslunefndar til umfjöllunar og eftirfylgni.