Dagskrá
1.Deiliskipulag gamla bæjarins og Klifamýrar
2311019
Páll Líndal kynnir þrjár tillögur að útfærslu deiliskipulags gamla bæjarins og Klifamýrar.
Skipulags- og samgöngunefnd þakkar Páli Líndal fyrir yfirferðina.
2.Skýrsla Skotfélagsins Markviss
2502024
Á 96. fundi byggðarráðs var ákvörðun um nafngift á nýjum vegi í gegnum Kleifarnámu vísað til skipulags-og samgöngunefndar til afgreiðslu.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að vegurinn fái nafnið Rjúpnagerði.
3.Áætlun eignamarka landeigna í eigu Húnabyggðar
2502035
Til umræðu listi frá HMS með áætluðum eignarmörkum jarða í eigu Húnabyggðar.
Lagt fram til kynningar.
SÞS vék af fundi undir þessum lið.
4.Auðkúla 3 afrétt, umsókn um afmörkun jarðar.
2503001
Jarðeignir ríkisins sækir um uppskiptingu á Auðkúla 3 afrétt, landnr. 234072, fasteignanr. 2522394, Húnabyggð samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Óskari Pál Óskarssyni, dagsettri þann 1. janúar 2025. Samkomulag er um að skipta upp jörðinni með jöfnum hætti milli eigenda Auðkúlu 1 og Auðkúlu 3.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir uppskiptingu jarðarinnar samkvæmt merkjalýsingu.
Fundi slitið - kl. 17:00.
BTH situr fundinn gegnum fjarfund.
Formaður óskar eftir því að máli verði bætt á dagskrá, nefndin samþykkir samhljóða.