Dagskrá
1.Viðbrögð vegna kvartana um ágangsfé
2308001
Landbúnaðarnefnd fjallaði um þau erindi sem borist hafa vegna ágangs búfjár í sveitarfélaginu og ályktar á meðan það ríkir óvissa um lagalegan grunn þessa máls geti nefndin ekki afgreitt það og vísar því málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
2.Girðingar í Húnabyggð
2209016
Girðingamál í fjallskilanefnd Enghlíðinga.
Landbúnaðarnefnd fjallaði um málið og óskar eftir ítarlegri hugmyndum fjallskilanefndar Enghlíðinga á hvaða lausnir séu raunhæfastar, þannig að hægt sé að taka afstöðu til einstakra hugmynda. Þessum hugmyndum þarf að fylgja umfang og kostnaður þeirra framkvæmda sem koma til álita.
Fundi slitið - kl. 17:40.