Dagskrá
1.Refa- og minnkaveiðar
2211018
Samræming reglna og samtal við þá sem þessar veiðar stunda fyrir sveitarfélagið.
2.Lausaganga fjár
2211019
Fyrirspurn frá Tryggingafélaginu Verði er varðar lausagöngu búfjár.
Staða helst óbreytt og er lausaganga búfjar leyfð. Sveitarstjóra falið að svara erindinu.
3.Búfénaður í þéttbýli
2211020
Reglur er varðar búfénað í þéttbýli.
Nefndin felur sveitastjóra og formanni að leggja drög að samþykkt um búfjárhald í þéttbýli.
4.Girðing á milli A-Hún og V-Hún
2211021
Erindi frá Húnaþingi vestra.
Drög að girðingu voru lögð fyrir nefndina. Nefndin leggur til að Fjallskiladeild Grímstungu- og Haukagilsheiðar fundi með Fjallskiladeild Víðidalstunguheiðar og í samráði finni þau ódýrari lausn á fyrirliggjandi vandamáli. Nefndin leggur til að niðurstaða verði komin í málið ekki seinna en 15. apríl 2023.
5.Girðingamál í heiðarlöndum sveitarfélagsins
2211022
Girðingamál í heiðarlöndum og þarfir í nýju sveitarfélagi.
Erindi var lagt fram til kynningar. Nefndin leggur til að á næsta fundi verði Fjallskilanefndir Húnabyggðar kallaðar inn til að ræða þetta mál betur.
6.Fjallskil
2211023
Hvaða reglur eiga að gilda í nýju sveitarfélagi?
Erindi var lagt fram til kynningar. Nefndin leggur til að á næsta fundi verði Fjallskilanefndir Húnabyggðar kallaðar inn til að ræða þetta mál betur.
7.Fundaskipulag
2211024
Ákveða fasta fundartíma fyrir nefndina.
Nefndin ákveður að halda fundi fyrsta mánudag hvers mánaðar klukkan 15:00
8.Erindisbréf Landbúnaðarnefndar Húnabyggðar
2211025
Erindisbréf Landbúnaðarnefndar Húnabyggðar.
Drög að erindisbréfi lagt fram til kynningar og athugasemdir gerðar.
Fundi slitið - kl. 18:00.
Rætt var um kosti og galla þess kerfis sem verið hefur þegar kemur að refaveiðum og hugmyndir settar fram um breytingar. Minkaveiðar voru einnig ræddar.