23. fundur
20. ágúst 2020 kl. 09:00 - 10:45 í fundarsal að Hnjúkabyggð 33
Nefndarmenn
Anna Margrét Jónsdóttirformaður
Rúnar Örn Guðmundssonaðalmaður
Þórarinn Bjarki Benediktssonaðalmaður
Starfsmenn
Valdimar O. Hermannssonsveitarstjóri
Birna Ágústsdóttir
Guðmundur Haukur Jakobsson
Höskuldur Birkir Erlingsson
Fundargerð ritaði:Anna Margrét Jónsdóttirformaður
Dagskrá
1.Göngur og réttir 2020
2008001
Göngur og réttir á tímum Covid-19
Farið var yfir leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna Covid-19 sem gefnar hafa verið út af Embætti landlæknis, Landssamtökum sauðfjárbænda, Bændasamtökum Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra. Ákveðið að hafa þátttökulista í réttir á vegum sveitarfélagsins, þær sem ætla má að gætu farið yfir 100 manns. Ekki verður skipulögð dagskrá í tengslum við stóðsmölun á Laxárdal og stóðréttir í Skrapatungurétt eins og verið hefur. Þeir sem ekki eiga fjárvon í réttum og ekki eru að aðstoða við réttarstörf eru vinsamlegast beðnir að mæta ekki til rétta. Sveitar- og fjallskilastjóra falið að útfæra nánar tilhögun sóttvarna í göngum og réttum og kynna það með fréttatilkynningu.
Ákveðið að hafa þátttökulista í réttir á vegum sveitarfélagsins, þær sem ætla má að gætu farið yfir 100 manns. Ekki verður skipulögð dagskrá í tengslum við stóðsmölun á Laxárdal og stóðréttir í Skrapatungurétt eins og verið hefur. Þeir sem ekki eiga fjárvon í réttum og ekki eru að aðstoða við réttarstörf eru vinsamlegast beðnir að mæta ekki til rétta. Sveitar- og fjallskilastjóra falið að útfæra nánar tilhögun sóttvarna í göngum og réttum og kynna það með fréttatilkynningu.