Dagskrá
1.Húnaskóli - Daglegt starf
2302026
Munnleg skýrsla skólastjóra Húnaskóla
2.Foreldrafélag Húnaskóla - Erindi
2303038
Upplýsingar frá aðalfundi Foreldrafélags Húnaskóla
Elín Ósk formaður foreldrafélgsins fór yfir fundargerð aðalfundar foreldrafélags Húnaskóla.
Fræðslunefnd fagnar góðri þátttöku á aðalfundinum. Nokkur umræða var um öryggismál á skólalóð á aðalfundinum. Fræðslunefnd tekur undir áhyggjur fundarins og beinir því til sveitarstjóra að úrbætur verði gerðar.
Fræðslunefnd óskar eftir því að Skólaráð Húnaskóla taki upp umræður um símalausan skóla.
Fræðslunefnd beinir bókun foreldrafélagsins um heimakstur til vinnuhóps um endurskoðun skólaakstursreglna í samræmi við umræður á aðalfundi foreldrafélagsins
Elín Ósk, Anna Margret, Kristín Jóna og Þórhalla yfirgáfu fundinn 15:55.

3.Leikskóli Húnabyggðar
2209018
Munnleg skýrsla skólastjóra
Sigríður Bjarney Aadnegard gaf skýrslu um starf leikskóla Húnabyggðar.
Kosning hefur farið fram meðal nemenda, foreldra og starfsfólks um einkunnar orð leikskólans. Virðing, vinátta og gleði eru þau orð sem valin voru og mun endurspeglast í öllu starfið leikskólans
Sigríður segir frá áherslum skólaársins 2024-2025. Áhersla verður á lýðræði í skólastarfi þar sem börn finna að þau eru hluti af samfélagi þar sem réttlæti og virðing einkenna samskipti ásamt því að hver og einn fái tækifæri til að leggja sitt af mörkum til að hafa áhrif á umhverfi sitt.
Hefja þarf markvissa vinnu við innramat með það að markmiði að auka gæði starfsins með virku innra mati þar sem rýnt er í hina ýmsu þætti í starfi skólans með það að markmið að gera enn betur.
Í leikskólanum er lögð áhersla á snemmtæka íhlutun þar sem markmiðið er að hafa áhrif á þroskaframvindu barna með markvissum aðgerðum eins snemma og unnt er. Unnið er út frá niðurstöðum þeirra matslista sem við höfum réttindi á.
Markvisst er unnið að því að bæta orðaforða efla málskilning barnanna og hljóðkerfisvitund.
Notast er meðal annars við kennsluefnið Lubbi finnur málbein, Orð eru ævintýr, TMT og þjálfunarverkefni skólans.
Þá er einnig hafin innleiðing á verkefninu á Heilsueflandi leikskóli og Vináttu, forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti.
Íþróttatíma og sundtímar farnir af stað.
Foreldrafélag leikskólans afhenti leikskólanum veglega gjöf á aðalfundi félagsins 24. október s.l. þar sem leikskólinn fékk að gjöf hljómborð og gítar.
Starfsþróunaráætlun er í fullum gangi á haustönn er námskeið í skyndihjálp, námskeið um notkun námsefnisins Vinátta, námskeið í K-PALS og G-PALS, námskeið í notkun Streitustigans, fræðslu um heimilisofbeldi/ofbeldi í nánum samböndum og Kynferðisofbeldi og kynferðisleg hegðun barna og unglinga. Á vorönn eru framhald á námskeiðum streitustigans, fræðsla um brunavarnir og vettvangsheimsókn.
Formaður foreldrafélags Leikskóla Húnabyggðar bar upp fyrirspurn um stöðu talmeinaþjónustu. Fræðslunefnd óskar eftir að Fræðslustjóri taki saman upplýsingar um stöðuna fyrir næsta fund Fræðslunefndar.
Fræðslunefnd þakkar Sigríði fyrir ítarlega skýrslu.

4.Foreldrafélag leikskóla Húnabyggðar - Bréf
2211051
Erindi frá Foreldrafélagi Leikskóla Húnabyggðar dags. 24.09.2024.
Fræðslunefnd þakkar fyrir erindið er varðar stöðu undirbúnings leikskólabyggingar sem hefur þegar verið svarað, að öðru leyti er vísað í lið 6 í fundargerð þessari.
5.Sumarlokun Leikskóla Húnabyggðar
2408018
Drög að könnun vegna sumarlokana Leikskóla Húnabyggðar
Sigríður kynnti drög að könnun sem lögð verður fyrir foreldra og forráðamenn um fyrirkomulag sumarlokunar leikskóla.
Fræðslunefnd samþykkir að leikskólastjóri leggi fram þessa könnun með áorðnum breytingum.
Fræðslunefnd samþykkir að leikskólastjóri leggi fram þessa könnun með áorðnum breytingum.
6.Leikskóli Húnabyggðar
2209018
Nýtt leikskólahúsnæði: Staða undirbúnings.
Húnabyggð hefur óskað eftir frekari fresti til að svara tilboði sem barst í nýja leikskólabyggingu sveitarfélagsins. Sá frestur rennur út í desember 2024.
Fyrir fundinum lá minnisblað um greiningu á fjárhagsáhrifum leikskólabyggingar. Nokkrar umræður urðu um minnisblaðið og stöðu málsins. Framvinda skýrist með fjárhags- og fjárfestingaáætlun næsta árs.
Fyrir fundinum lá minnisblað um greiningu á fjárhagsáhrifum leikskólabyggingar. Nokkrar umræður urðu um minnisblaðið og stöðu málsins. Framvinda skýrist með fjárhags- og fjárfestingaáætlun næsta árs.
Fundi slitið - kl. 17:05.
Skólastarf Húnaskóla hefur að mestu leyti verið hefðbundið.
Ungmennaþing SSNV var haldið 11. september - 10 unglingar frá Húnaskóla tóku þátt í deginum.
Margrét Sigurðardóttir uppeldis og menntunarfræðingur kom í október með fyrirlesturinn,,Verum góð -Láttu þér og öðrum líða vel? fyrir unglinga í 8. - 10. bekk og ,,Forvarnir og foreldrasamstarf - Verum sýnileg og aukum samskipti, samveru og samstarf. Styðjum við skólastarf og þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Velferð allra barna skiptir okkur máli." fyrir foreldra um kvöldið. Báðir fyrirlestrarnir voru á vegum Félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins í tengslum við námskeið starfsfólks félagsmiðstöðvarinnar en í samráði við stjórnendur Húnaskóla.
Starfsfólk Húnaskóla tók þátt í fræðslu “ Hinsegin lífsgæði - Að tilheyra / Fitting in. Lýðheilsa hinsegin ungmenna á landsbyggðinni?. Fræðslan var á vegum verkefnisins Öruggt hinsegin skólaumhverfi en í forsvari verkefnisins eru Davíð Samúelsson og Fanney Kristjánsdóttir.
Evrópurútan - starfsfólk Húnaskóla mætti þar og kynnti sér málin. Kynning um allt land á tækifærum í alþjóðasamstarfi.
Rýmingaræfing var haldin 2. október í samstarfi við slökkviliðsstjóra og gekk hún mjög vel. Allir árgangar skólans tóku þátt ásamt nemendum á Stóra Fjallabæ.
Fjallgöngur - öllum námshópum nema 9. og 10. bekk tóks að klára sínar haust-göngur en því miður varð að aflýsa göngu upp á Axlaröxlina vegna veðurs og færðar.
Allir árgangar skólans ásamt starfsfólki tók þátt í Göngum í skólann verkefninu og var gullskórinn afhentur nemendum 3. bekkjar í lok heilsuvikunnar. Mjótt var á munum því mikil og góð þátttaka var í verkefninu. Skólinn tók einnig þátt í heilsuvikunni með sinni árlegu fjölskyldugöngu. Auk þess vorum við dugleg að auglýsa viðburði vikunnar.
26. september í Alþjóðlegri gagnaversviku var nemendum 7. og 8. bekkjar Húnaskóla boðið í Gagnaverið og Blöndustöð af Borealis Data Center. Fengu nemendur góða fræðslu og að sjálfsögðu voru veitingar í boði.
Valgreinadagur 8. og 10. bekkjar var 2. október á Hvammstanga.
Farskólinn hefur verið með nokkur námskeið í Heimilisfræðistofunni.
Stelpur geta allt - árlegt laugardagsnámskeið haldið í Húnaskóla á vegum Soroptimista. Er notað sem innlegg í vinnu við bætt samskipti.
Utís námstefnan tókst mjög vel og voru mætt hér í skólann bæði starfsfólk Húnaskóla og Leikskóla Húnabyggðar.
Sameiginlegur námskeiðsdagur var 7. október og heppnaðist vel. Nýttum okkur tæknina og voru fyrirlesararnir á netinu. Verkefnin voru Vinátta og Pals- læsisverkefni.
Áætlað er eitt sameiginlegt námskeið leik- og grunnskólanna í viðbót á árinu en það er dagsett 11. desember og heitir Heilsueflandi vinnustaður og fjallar um streitustigann. Námskeiðið er í takt við stefnu okkar í að innleiða Heilsueflandi samfélag.
Fulltrúi frá lögreglunni hefur komið með fræðslu inn í Húnaskóla samkvæmt forvarnaráætlun Norðurlands vestra. Gott er að sjá að áætlunin er komin af stað. Einnig var fulltrúi lögreglunnar með fræðsluerindi fyrir starfsfólk á ágúst “Ofbeldi í nánum samböndum?.
Vel var mætt á Haustþing alls starfsfólks grunnskóla á Norðurlandi vestra og flott erindi í boði. Eitt af mörgum frábærum erindum var fyrirlestur um Ofbeldi og hegðunarvandi.
10. bekkur fer í þessari viku í kynningu í MA, VMA og heimavistina þar.
Íþróttakennsla er komin í hús á nýju gólfi.
Síðast sagði skólastjóri frá að tveir núverandi og einn fyrrverandi kennarar við Húnaskóla yrðu með erindi á Ráðstefnu á Akureyri. Skemmst er að segja frá því að þær Brynhildur Erla, Kristín Jóna og Magdalena Berglind stóðu sig mjög vel og erum við mjög stolt af þeim.
Formaður foreldrafélagsins og skólastjóri hittust í upphafi skóla og fóru yfir nokkur mál. Í framhaldinu setti foreldrafélagið upp nýjan bekkjarfulltrúalista og er hann sýnilegur á vef skólans. Þar er einnig að finna hugmyndir fyrir bekkjarfulltrúa og upplýsingar um foreldrafélagið.
Foreldraviðtalsdagur var 16. október og var mæting góð.
Á næstu dögum og vikum eru bekkjarkvöld. Flest þeirra eru með foreldrum og liður í að auka samheldni í hópum, hittast og hafa gaman. Umsjónarkennarar eru hvattir til að nýta sér aðstoð bekkjarfulltrúa.
Aðgengismál - Hafinn er akstur tveggja skólabíla og akstursþjónustu fatlaðra um nýjan akveg að suðurhlið Gamla skóla.
Aðstaða annarra deilda í Húnaskóla
Skjólið hefur verið með aðstöðu í skólanum bæði á bókasafninu fyrir dagopnun og eins í matsalnum með kvöldopnun frá því í byrjun september og verður eitthvað fram í nóvember. Það hefur gengið vel.
Liðveisla á vegum Félagsþjóustunnar hefur lengi haft aðstöðu í skólanum.
Matsalurinn er vinsæll fyrirlestrarsalur fyrir ýmis fræðslumál og hafa t.d. bæði foreldrafélag Húnaskóla og Leikskóla Húnabyggðar verið þar með sýna aðalfundi og fræðslu. Báðir skólarnir nota salinn mikið fyrir sína starfsþróun en einnig Skólaþjónusta A-Hún og fyrirlestrar á vegum menningar- og tómstundafulltrúa.
Samstarf leik- og grunnskóla gengur mjög vel.
Matseðlar eru samkvæmt fyrirmælum og fjölbreytt úrval í “salat?borði. Skólastjórar leik- og grunnskóla hafa hittst á fundum með yfirmanni mötuneytis og áætla að gera það nokkrum sinnum yfir veturinn. Þess má geta að matseðill í nóvember er útbúinn af 7. og 8. bekk Húnaskóla undir stjórn heimilisfræðikennara en nemendur Stóra Fjallabæjar eiga heiðurinn af máltíðum 7. og 8. nóvember. Mögulega gerum við meira af þessu. Nemendur eru þá búnir að fá fræðslu um skólamáltíðir, skoða matseðla í skólum, koma með tillögur, setja saman matseðil og fá svo kokkinn í heimsókn þar sem samtal á sér stað um matinn og matseðlana.
Fjöldi barna á Skóladagheimilinu er um 60 og skiptist jafnt á árganga.
Allir kennarar eru í umsjónarteymum og faggreinateymum en einnig eru þeir í öðrum fagteymum eins og eineltisteymi, forvarnarteymi, skólanámskrárteymi, áfallateymi, öryggisteymi, heilsueflandi teymi, stærðfræðiteymi, læsisteymi, skólaregluteymi, sem sér um að útfæra skólareglur, ástundunarreglur og fleiri reglur í samstarfi við aðra í skólasamfélaginu o.fl.
Fræðslunefnd þakkar fyrir ítarlega skýrslu.