Dagskrá
1.Hópslysaæfing
2403028
Erindi frá Lögrelgustjóranum á Norðurlandi vestra er varðar staðsetningu hópslysaæfingar við gatnamót Ennisbrautar og Neðribyggðarvegar
Byggðarráð samþykkir erindi lögreglunnar fyrir sitt leyti
2.Fjöldahjálpastöð
2403029
Erindi frá Rauða Krossinum er varðar nýja staðsetningu fjöldahjálparstöðvar
Byggðarráð samþykkir að Íþróttamiðstöðin verði skilgreind sem fjöldahjálpastöð. Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá samningi þess efnis við Rauða krossinn
3.Húnabyggð - Sala eigna
2301007
Tilboð í Ólafshús
Byggðarráð samþykkir tilboð í Ólafshús og fagnar því að aðilar hafi áhuga á að gera upp hús í gamla bænum en með tilboðinu fylgja metnaðarfullar fyrirætlanir. Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá samningi við kaupendur
4.Húnabyggð - Sala á Húnavöllum
2211034
Samningur við fasteignasala um sölu á Húnavöllum
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsskilmála og felur sveitartjóra að semja við að hámarki fjóra fasteignasala um að selja fasteignirnar á Húnavöllum
5.Hljóðvist í skólum
2403030
Erindi frá Umboðsmanni barna er varðar hljóðvist í skólum
Lagt fram til kynningar, erindinu vísað til fræðslunefndar Húnabyggðar
6.Fundargerðir 944. og 945. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
2403033
Funagerðir 944. og 945. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar
7.Fundargerð 48. fundar fagráðs Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands
2403031
Fundargerð 48. fundar fagráðs
Lagt fram til kynningar
Fundi slitið - kl. 15:28.