Dagskrá
1.Framkvæmdir við Blönduskóla
1505027
Sveitarstjóri fór yfir vinnuteikningu varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir við Blönduskóla.
2.Skotfélagið Markviss - skotsvæði og drög að samningum
1902016
Lögð voru fram drög að nýjum samningum um lóð og afnotasvæði Skotfélagsins Markviss
Byggðaráð felur sveitarstjóra að ganga frá samningum.
3.Atvinnuvega- og Nýsköpunarráðuneytið
1902014
Sveitarstjóri kynnir bréf Atvinnuvega- og Nýsköpunarráðuneytis um áfangastaðaáætlanir.
Sveitarstjóra falið að kynna skýrsluna til viðeigandi aðila.
4.Íbúðalánasjóður - Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga
1902011
Þann 21. desember sl. tók gildi reglugerð nr. 1248/2018 um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga. Reglugerðin er sett í framhaldi af breytingum á lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál og er það m.a. kveðið á um að öll sveitarfélög skuli gera húsnæðisáætlun til fjögurra ára í senn og þær skuli uppfærðar árlega með tilliti til breytinga og þróunar sem orðið hafa á forsendum hennar milli ára.
Byggðaráð felur sveitarstjóra að kanna kostnað við gerð húsnæðisáætlunar og koma með tillögu í samráði við tæknideild.
5.Öryrkjabandalag Íslands - Fyrirspurn um notendaráð fatlaðs fólks
1902017
Erindi frá Öryrkjabandalagi Íslands þar sem Bandalagið sendir sveitarfélögum á landinu fyrirspurn um notendaráð fatlaðs fólks.
Byggðaráð felur sveitarstjóra að svara erindinu.
6.Erindi frá lögreglunni á Norðurlandi vestra
1512010
Erindi frá lögreglunni á Norðurlandi vestra um fulltrúa í Almannavarnarnefnd Húnavatnssýslna.
Lagt fram til kynningar og frekari skoðunar.
7.UMFÍ - Ungmennastefnan Ungt fólk og lýðræði
1902013
Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands - UMFÍ stendur nú í tíunda sinn fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði. Ráðstefnan verður daganna 10-12 apríl 2019 og er ætluð ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.
Byggðaráð vísar erindinu til Menningar-, tómstunda og íþróttanefndar, sem tilnefnir fulltrúa sveitarfélagsins.
8.Enni
1804028
Bréf frá Sindra Páli Bjarnasyni, Neðri - Mýrum varðandi afnot af landi jarðarinnar Ennis.
Byggðaráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að ganga til viðræðna um afnot af landi jarðarinnar Ennis á grundvelli umræðna á fundinum.
Birna Ágústsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Birna Ágústsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
9.Móttaka flóttafólks
1509005
Sveitarstjóri fór yfir stöðu verkefnisins, ákveðið að kynningarfundur fyrir íbúa verði haldinn mánudaginn 25. febrúar klukkan 20:00 í Félagsheimilinu. Þar munu fulltrúar frá Félagsmálaráðuneyti og Rauða Kross Íslands kynna undirbúning og umfang verkefnisins.
10.Húnavatnshreppur - Fundargerð 213 - fundur sveitarstjórnar 30. janúar 2019
1902012
Lagt fram til kynningar
11.SSNV - fundargerð 41. fundar stjórnar SSNV 5. febrúar 2019
1902020
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið.