Dagskrá
1.Sýslumaðurinn á Blönduósi - umsögn vegna leyfis
1604030
2.Atvinnumál
1605006
Miklar umræður urðu um atvinnumál og voru rædd verkefni sem eru á forræði Bs. um menningu og atvinnumál, SSNV auk byggðaráðs. Til að mynda voru umræður um upplýsingamiðstöð, álver, biodísel ofl.
3.Farskólinn - Aðalfundur og vorfundur 11. maí 2016
1605004
Boðað er til aðalfundar og vorfundar Farskólans - miðstöðvar símenntunar á Norðurlandi vestra í Farskólanum við Faxatorg, miðvikudaginn 11. maí kl. 13:30.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
4.Veiðifélagið Hængur - fundarboð
1604032
Boðað er til aðalfundar veiðifélagsins Hængs í veiðihúsinu Torfalundi, laugardaginn 7. maí kl. 13:00.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
5.Landskerfi bókasafna hf - Aðalfundarboð
1604028
Boðað er til aðalfundar Landskerfis bókasafna hf að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 10. maí kl. 15:00.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
6.Vilko - aðalfundarboð 3. maí 2016
1604021
Boðað er til aðalfundar Vilko ehf í Eyvindastofu, B&S Restaurant, fimmtudaginn 12. maí kl. 13:00.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
7.Ámundakinn ehf - aðalfundarboð 12. maí 2016
1604038
Boðað er til aðalfundar Ámundakinnar í Eyvindastofu, Norðurlandsvegi 4, fimmtudaginn 12. maí kl. 15:00.
Byggðaráð samþykkir að Zophonías Ari Lárusson fari með atkvæði Blönduósbæjar á fundinum.
Byggðaráð samþykkir að Zophonías Ari Lárusson fari með atkvæði Blönduósbæjar á fundinum.
8.Dreifnám A- Hún - styrkumsókn
1604023
Nemendasjóður Deifnáms í A - hún óskar eftir styrk þar sem fyrirhuguð er vorferð í Bakkaflöt ásamt nemendum Dreifnáms á Hvammstanga. Markmiðið er að allir nemendur geti tekið þátt í félagslífinu áháð fjárhag.
Byggðaráð samþykkir kr. 30.000. Fært af lið 0589-9991.
Byggðaráð samþykkir kr. 30.000. Fært af lið 0589-9991.
9.Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps - styrkbeiðni
1604022
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps óskar eftir styrk til starfsins frá sveitarfélaginu, líkt og hefur verið á liðnum árum, en kórinn hefur unnið öflugt starf ásamt því að hafa farið af stað með nýtt verkefni, söngperlur Ellýar og Vilhjálms sem heppnaðist vel.
Byggðaráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 2017.
Byggðaráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 2017.
10.Lánasjóður sveitarfélaga ohf - arðgreiðsla vegna ársins 2015
1604024
Á aðalfundi Lánasjóðsins þann 8. apríl síðastliðinn var samþykkt að greiða út arð til hluthafa vegna góðrar afkomu ársins 2015. Hlutur Blönduósbæjar er 1,466% og arðgreiðsla nemur því 7.667.180 kr. Í samræmi við lög nr. 94/1996 skal halda eftir 20% fjármagnstekjuskatti og því koma 6.133.744 kr. til útborgunar sem arður frá Lánasjóðnum.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
11.Rekstraryfirlit Blönduósbæjar
1508019
Umfjöllun um rekstraráætlunar frestað til næsta fundar.
12.Hafnarsamband Íslands - ársreikningur 2015
1604031
Lagt fram til kynningar
13.Heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra - fundargerð 28.04.16
1605001
Fundargerð Heilbrigðisnefndasr Norðurlands vestra lögð fram til kynningar.
14.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 5. apríl 2016
1605002
Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
15.Norðurá bs. - Fundargerð stjórnar 7. mars 2016
1604037
Fundargerð Norðurá bs. lögð fram til kynningar.
16.SSNV - fundargerð stjórnar 2. mars 2016
1604036
Fundargerð SSNV lögð fram til kynningar.
17.SSNV - fundargerð stjórnar 8. febrúar 2016
1604035
Fundargerð SSNV lögð fram til kynningar.
18.SSNV - fundargerð stjórnar SSNV 2. febrúar 2016
1604034
Fundargerð SSNV lögð fram til kynningar.
19.SSNV - fundargerð stjórnar SSNV 12. janúar 2016
1604033
Fundargerð SSNV lögð fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 20:05.
Með vísan til 4. mgr. 1. tl. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gistiheimili og skemmtanahald, þar sem sveitarstjórn er falið að veita umsögn um afgreiðslutíma og staðsetningu staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um, veitir byggðaráð jákvæða umsögn.