Dagskrá
1.Fundargerð stjórnar Veiðifélags Blöndu og Svartár - stjórnarfundur 24. september 2015
1510007
Fundargerðin lögð fram til kynningar
2.Íbúafundur
1510022
Á fundi sveitarstjórnar Blönduósbæjar þann 14. apríl 2015 var eftirfarandi bókað: ?Sveitarstjórn samþykkir að fela byggðarráði að kanna kosti og galla þess að fram fari kosning meðal íbúa Blönduósbæjar um hámarkshraða á götum bæjarins. Byggðaráð komi með tillögu í málinu fyrir 1. október 2015?.
Umræður urðu um málið og byggðaráð leggur til að boðað verði til íbúafundar í byrjun febrúar 2016.
Umræður urðu um málið og byggðaráð leggur til að boðað verði til íbúafundar í byrjun febrúar 2016.
3.Kleifar
1410016
Ábúðarsamningi vegna jarðarinnar Kleifa hefur verið sagt upp. Samningar við ábúendur hafa ekki skilað árangri.
Byggðaráð samþykkir að fela lögmanni sveitarfélagsins að leiða málefni jarðarinnar Kleifa til lykta.
Byggðaráð samþykkir að fela lögmanni sveitarfélagsins að leiða málefni jarðarinnar Kleifa til lykta.
4.Önnur mál
1510017
5.Vinnuferli við fjárhagsáætlun 2016
1510016
Sveitarstjóri lagði fram og kynnti vinnuferli við fjárhagsáætlunargerð 2016.
6.Erindi frá Ámundakinn
1509018
Ámundakinn ehf. gerir Blönduósbæ tilboð í allt hlutafé sveitarfélagsins í Tækifæri ehf.
Byggðaráð felur sveitarstjóra að afla upplýsinga um málið.
Byggðaráð felur sveitarstjóra að afla upplýsinga um málið.
7.Beiðni um þátttöku í kostnaði við rekstur sumarbúða fyrir fötluð börn og ungmenni
1509024
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra óskar efitr þátttöku í kostnaði við rekstur sumarbúða fyrir fötluð börn og ungmenni að upphæð 46.900kr.
Byggðaráð samþykkir erindið.
Byggðaráð samþykkir erindið.
8.Rekstrarstyrkur fyrir árið 2016
1509023
Farskólinn-miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra óskar eftir rekstrarstyrk að upphæð 163.000 kr. fyrir árið 2016.
Byggðaráð samþykkir erindið.
Byggðaráð samþykkir erindið.
9.Fundargerð sambands íslenskra sveitarfélaga - stjórnarfundur 11. september 2015
1510015
Fundargerðin lögð fram til kynningar
10.Fundargerð Róta Bs - stjórnarfundur 8 sept 2015
1510010
Fundargerðin lögð fram til kynningar
11.16. aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands
1510009
Fundargerðin lögð fram til kynningar
12.Fundargerð sambands íslenskra sveitarfélaga - stjórnarfundur 11. september 2015
1510015
Fundargerð lögð fram til kynningar
13.Ársþing SSNV 2015 - drög að dagskrá
1510014
Ársþing SSNV 2015 verður haldið á Blönduósi föstudaginn 16. október n.k. Dagskrá þingsins lögð fram til kynningar.
14.Fundargerð stjórnar SSNV - 15 sept 2015
1510013
Fundargerðin lögð fram til kynningar
15.Fundargerð stjórnar SSNV frá 8. sept
1510012
Byggðaráð samþykkir eftirfarandi bókun við fundargerð þessa:
"Byggðaráð furðar sig á að SSNV hafi ekki lokið við að ráða atvinnufulltrúa á Blönduósi að nýju eins og rætt var um á ársþingi SSNV á Hvammstanga árið 2014. Á svæðinu eru uppi miklar hugmyndir um atvinnuuppbyggingu og mikil þörf er fyrir markaðs-og kynningarstarf á atvinnustarfsemi sem fyrir er t.a.m. ferðaþjónustu.
Byggðaráð krefst þess að stjórn SSNV gangi frá ráðningu atvinnufulltrúa á Blönduósi eins fljótt og auðið er"

16.Ósk um undanþágu frá 8000 íbúa viðmiði
1510011
Bréf Velferðarráðuneytisins frá 22. september þar sem ráðuneytið fjallar um beiðni sveitarfélaganna Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar um undanþágu frá 8000 viðmiði samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 59/1992 er lagt fram til kynningar.
17.Fundargerð Róta bs. - stjórnarfundur 17. september 2015
1510008
Fundargerðin lögð fram til kynningar
Fundi slitið - kl. 19:00.