Dagskrá
1.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða - umsóknir 2023
2209015
Farið yfir stöðu mála á verkefnum sem fengið hafa styrki og unnið að umsóknum fyrir næsta ár.
2.Helstu hlutverk Atvinnu- og menningarnefndar Húnabyggðar
2209028
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi nefndarinnar.
Sveitarstjóri greindi frá því að stefnt væri að því að erindisbréf fastanefnda Húnabyggðar verði lögð fyrir næsta fund sveitarstjórnar og síðan send til nefnda. Einnig var rætt um hlutverk nefndarinnar, varðandi skipan í ýmsar nefndir og ráð.
3.Önnur mál
2206034
Ræll almennt um störf og verkefni nefndarinnar.
Fundi slitið - kl. 17:00.
Eftir umræður var samþykkt að sækja um eftirtaln verkefni þar sem Vatnsdæla og Hvammsfoss hafi þegar fengið styrki og þarf að vinna framgangi þeirra verkefna.
* Hrútey - endurnýja og uppfæra fyrri umsókn í 3 áfanga sem er aðstöðuhús
* Gamli bærinn - Undirbúningavinna og hönnun fyrir frekari uppbyggingu ferðaþjónustutengra innviða svæðisins.
* Gullsteinn - Uppbygging á nýju bílastæði, upplýsingaskilti,nýjan kross og lýsingu
* Gönguleiðir við Blöndu - Vinna að hönnun, uppbyggingu og tengingu göngustíga beggja vegna Blöndu, sem tengir núverandi stíga við tjaldsvæði, Hrútey og við Gamla bæ.
* Bolabás - Undirbúningur og hönnun á grófum göngustíg frá hafnarsvæði að Bolabás.
ATH. Kanna þarf með stöðu Þrístapa verkefnisins gagnvart landsáætlun.
Unnið verður að upplýsingaöflun á næstu dögum og fengin aðstoð eftir þörfum, meðal annars frá Davíð hjá SSNV. Davíð vék af fundi kl 16:40- með þökkum fyrir komuna.