23. mars 2020
Tilkynningar
- Samráðshópur um áfallahjálp í Húnavatnssýslum hefur verið virkjaður vegna smits af kórónuveirunni covid-19 í vesturhluta héraðsins, þ.e. í Húnaþingi vestra.
- Í hópnum sitja fulltrúar RKÍ, þjóðkirkju, félagsþjónustu, heilsugæslu og lögreglu.
- Samráðshópurinn vill færa fram kærar þakkir til heilbrigðisstarfsfólks og allra viðbragðsaðila fyrir mikla og óeigingjarna vinnu en ljóst er að mikið og öflugt starf hefur verið unnið á stuttum tíma við sérstakar og oft á tíðum afar erfiðar aðstæður. Einnig vill hópurinn þakka íbúum fyrir stuðning og hjálpsemi við náungann, sem einkennist af samstöðu og samkennd, þolinmæði og þrautseigju, æðruleysi og einingu.
- Fulltrúar hópsins hafa verið í sambandi við skjólstæðinga og viðbragðsaðila og munu verða það enn frekar á næstunni til þess að bjóða viðrun og sálgæslu.
- Íbúum á svæðinu er velkomið að hringja í fulltrúa hópsins varðandi ýmis úrlausnarefni eða beiðni um sálrænan stuðning. Þó skal tekið fram vegna þess hve mikið álag er á Heilsugæslu HVE á Hvammstanga þá er æskilegt að beina beiðnum um sálrænan stuðning annað um sinn s.s. RKÍ, kirkju eða félagsþjónustu. Hins vegar ef um bráð andleg veikindi er að ræða skal hringt í eitthvert eftirtalinna símanúmera: 432-1300, 1700, 112.
- Hér að neðan eru símanúmer og/eða netföng einstakra stofnanaeða fulltrúa þeirra sem velkomið er að hringja í:
- Hjálparsími RKÍ 1717
- Þjóðkirkjan – sóknarpresturinn á Hvammstanga s. 867-2278.
- Netfang: srmagnus@simnet.is
- Þjóðkirkjan – sóknarpresturinn á Skagaströnd s. 860-8845.
- Netfang: bryndis.valbjarnardottir@gmail.com
- Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga s. 432-1300.
- Netfang: sesselja.eggertsdottir@hve.is
- Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi s. 455-4100.
- Netfang: sigridurs@hsn.is
- Fjölskyldu- og fræðslusvið Húnaþings vestra s. 771-4966.
- Netfang: jenny@hunathing.is
- Félagsþjónusta Austur Húnavatnssýslu s. 863-5013.
- Netfang: felagsmalastjori@felahun.is