Pétur Arason, sveitarstjóri í Húnabyggð og Katrín M. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV undirrita …
Pétur Arason, sveitarstjóri í Húnabyggð og Katrín M. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV undirrita samning um verkefnið: Tilraunagróðurhús

Húnabyggð og SSNV hafa undirritað samning vegna styrks til nýtingu glatvarma frá gagnaverinu á Blönduósi. Til stendur að reisa tilraunagróðurhús og veita frumkvöðlum aðgengi til að prófa og þróa vörur, og þannig gera svæðið eftirsóknarvert fyrir matarfrumkvöðla. Orka verður tryggð með sólarrafhlöðum. Um er að ræða spennandi verkefni sem við erum sannfærð um að muni efla svæðið þegar litið er til framtíðar.

Innviðaráðherra auglýsti eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar vegna verkefna sem tengjast aðgerð C1 eða sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða. Styrkjunum er ætlað að efla byggðir landsins og var úthlutað til sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga.

Sigurður Ingi Jóhannsson þáverandi innviðaráðherra úthlutaði styrkjum til 10 verkefna á landsbyggðinni að upphæð 130 milljónum króna. SSNV sótti um fyrir hönd sveitarfélaga í landshlutanum og hlaut Norðurland vestra 40 milljónir króna í styrk til þriggja verkefna í landshlutanum, FabLab smiðja og aðstaða til nýsköpunar og þróunar í Húnaþingi vestra, samvinnurými á Skagaströnd og tilraunagróðurhús í Húnabyggð.

Getum við bætt efni þessarar síðu?