18. júlí 2022
Fréttir
Umhverfisverðlaun eru veitt sem viðurkenning til einstaklinga fyrir fallega og vel hirta garða og fyrir snyrtilegt umhverfi.
Laugardaginn 16.júlí, á Húnavöku voru veittar 3 viðurkenningar:
- Viðurkenning í þéttbýli,
- Viðurkenning í dreifbýli
- Sérstök viðurkenning
Það voru þau Steinunn Hulda Magnúsdóttir og Jónas Rúnar Guðmundsson íbúar á Mýrarbraut 25 sem hlutu viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi í þéttbýli. Einnig hlaut bóndinn Jónatan Líndal á Holtastöðum viðurkenningu í dreifbýli fyrir snyrtilegt umhverfi.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, HSN á Blönduósi hlaut sérstaklega viðurkenningu fyrir fallegt umhverfi.
Varaformaður Umhverfisnefndar, Berglind Hlín Baldursdóttir afhenti umhverfisverðlaunin fyrir hönd Umhverfisnefndar.
Húnabyggð óskar öllum innilega til hamingju með verðlaunin!