14. mars 2020
Tilkynningar
- Kæru sveitungar
- Þetta eru sannarlega óvenjulegir tímar sem nú eru runnir upp. Eins og fram hefur komið verður sett á fjögurra vikna samkomubann í landinu frá og með mánudeginum 16. mars næstkomandi. Með því er ætlunin að draga úr faraldrinum og þannig minnka álag á heilbrigðiskerfið. Stjórnendur hjá Húnavatnshreppi vinna nú að því að skipuleggja starfsemina með tilliti til þessa og íslensk sveitarfélög samræma ráðstafanir í starfi leik- og grunnskóla. Þangað til nýtt fyrirkomulag hefur tekið gildi, vinnum við hjá Húnavatnshreppi eftir við viðbragðsáætlun sem sett var sl. þriðjudag og nánari aðgerðaáætlun frá því í gær.
- Mánudaginn 16. mars nk. verður starfsdagur í leik- og grunnskóla, það er gert til að skólarnir nái að skipuleggja starfsemi sína og ráðstafanir til næstu vikna.
- Við munum eins fljótt og auðið er miðla frekari upplýsingum og leiðbeiningum.
- Ég hvet íbúa til að sýna þessu vandasama viðfangsefni mikla virðingu. Enn hefur ekkert smit greinst á Norðurlandi vestra. Við þurfum að gæta mikillar varkárni í samskiptum og fara í einu og öllu að fyrirmælum fagfólks. Það er í okkar höndum að lágmarka áhrif þessa faraldurs.
- Ég biðla til ykkar, um að við hjálpumst að á þessum óvenjulegu tímum.
- Helstu atriði úr Aðgerðaáætlun Húnavatnshrepps:
- Heimsóknir
- Tekið hefur verið fyrir heimsóknir í stofnanir og húsnæði sveitarfélagsins, nema fyrir þau sem þangað eiga brýn erindi. Það er í höndum forstöðumanna stofnana að sjá um framkvæmd á þessu. Við óskum eftir góðri samvinnu og skilningi.
- Algert bann, gildir um:
- Eldhús leik- og grunnskóla
- Veruleg takmörkun; einungis notendur þjónustu:
- Leikskóli, grunnskóli, íþróttahús og sundlaug:
- Engar heimsóknir utanaðkomandi aðila eru leyfðar til okkar og við biðjum um gott samstarf um það.
- Skrifstofa sveitarfélagsins:
- Einungis viðskiptavinir með brýn erindi.
- Bókasafn, Dalsmynni:
- Lokað
- Leikskóli, grunnskóli, íþróttahús og sundlaug:
- Fundir
- Öllum fundum sem ekki þarf nauðsynlega að halda eða taka þátt í, skal sleppa.
- Fundi nefnda, ráða og sveitarstjórnar Húnavatnshrepps má halda sem fjarfundi, ef nauðsyn krefur, sbr. væntanlega breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011
- Heimsóknir
- Helstu atriði úr Aðgerðaáætlun Húnavatnshrepps:
- Aðgerðaáætlun Húnavatnshrepps var samþykkt, föstudaginn 13. mars 2020 og hefur þegar verið virkjuð.
- Þetta eru sannarlega óvenjulegir tímar sem nú eru runnir upp. Eins og fram hefur komið verður sett á fjögurra vikna samkomubann í landinu frá og með mánudeginum 16. mars næstkomandi. Með því er ætlunin að draga úr faraldrinum og þannig minnka álag á heilbrigðiskerfið. Stjórnendur hjá Húnavatnshreppi vinna nú að því að skipuleggja starfsemina með tilliti til þessa og íslensk sveitarfélög samræma ráðstafanir í starfi leik- og grunnskóla. Þangað til nýtt fyrirkomulag hefur tekið gildi, vinnum við hjá Húnavatnshreppi eftir við viðbragðsáætlun sem sett var sl. þriðjudag og nánari aðgerðaáætlun frá því í gær.
Gleymum ekki gleðinni og kærleikanum, það eru nauðsynlegir meðreiðarsveinar í gegnum lífið
Einar Kristján Jónsson.