14. mars 2020
Tilkynningar
- Tilkynning frá skólastjóra:
- Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í gær hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.
- Skólastjóri ásamt sveitarstjórn Húnavatnshrepps vinna nú að skipulagningu skólastarfs m.v. ofangreindar ákvarðanir.
- Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16.mars verði starfsdagur í Húnavallaskóla og leikskólanum Vallabóli, til þess að stjórnendur og starfsmenn geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.
- Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðu sveitarfélagsins og heimasíðum grunn- og leikskóla.
Skólastjóri