Leitað er að jákvæðum, heiðarlegum og kraftmiklum einstaklingi sem er reiðubúinn til að leggja sig allan fram í krefjandi starfi. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri reynslu af því að starfa með fólki og þarf einnig að eiga auðvelt með samskipti fyrir hönd sveitarfélagsins og að vera talsmaður
þess, hvort sem er í samskiptum við opinbera stjórnsýslu, viðskiptavini, íbúa eða fjölmiðla.

Starfssvið
Sveitarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og sér um framkvæmd ákvarðana sem teknar eru af sveitarstjórn og byggðaráði.
Sveitarstjóri skipuleggur og undirbýr dagskrá funda, situr fundi sveitarstjórnar, byggðaráðs og annarra nefnda eftir atvikum og hefur þar málfrelsi og tillögurétt. 
Sveitarstjóri leiðir atvinnuuppbyggingu og eflingu atvinnulífs á svæðinu og önnur verk sem honum kunna að vera falin.
Nánari útlistun á hlutverki sveitarstjóra er að finna í 49. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Blönduósbæjar.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er skilyrði. 
Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og samskiptum er skilyrði.
Þekking og reynsla af stefnumótun er kostur.
 Þekking og reynsla af sveitarstjórnarmálum og opinberri stjórnsýslu er kostur. 
Góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði, hugmyndaauðgi og metnaður til árangurs. 
Hæfileiki til að tjá sig í ræðu og riti.
Leiðtogahæfileikar með áherslu á frumkvæði, örugga ákvarðanatöku og skipulögð vinnubrögð.

Umsókn

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferlisskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí 2018.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðmundur H. Jakobsson formaður byggðaráðs í síma 898 8489 og Rannveig Lena Gísladóttir forseti sveitarstjórnar í síma 893 0816.
Umsókn skal skilað rafrænt á netfangið sveitarstjori@blonduos.is

 

Blönduósbær er vel staðsett sveitarfélag í alfaraleið með ríflega 900 íbúa. Spennandi framkvæmdir eru á döfinni og mikil tækifæri til uppbyggingar. Á Blönduósi er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig og metnaðarfullt leik og grunnskólastarf. Möguleikar til útivistar, íþróttaiðkunar, afþreyingar og félagsstarfa eru fjölmargir í sveitarfélaginu.
Nánari upplýsingar um sveitarfélagið má finna á www.blonduos.is

Getum við bætt efni þessarar síðu?