23. október 2017
Fréttir
Á morgun þann 24. október verður Markaðsstofa Norðurlands með DMP fund í Eyvindarstofu á Blönduósi frá klukkan 9.30 - 15.00 þar sem fjallað verður um verkefnið ásamt því að farið verður í ákvarðanatökur varðandi forgangsverkefni hagsmunaaðila á svæðinu.
Mikilvægt er að þeir sem vilja hafa áhrif á þróun ábyrgrar ferðaþjónustu á svæðinu mæti á fundinn og taki þátt í þessu mikilvæga verkefni.