14. apríl 2023
Fréttir
Húnabyggð vill benda á að Orkustofnun hvetur til umhverfisvænnar orkuöflunar við húshitun og bæta orkunýtni í rafhitun á landinu.
Með breytingum á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar var opnað á möguleika ríkisins til að taka þátt í stofnkostnaði við umhverfisvæna orkuöflun sem dregur úr rafhitun eða olíukyndingu. Hægt er að minnka rafhitun með ýmsu móti m.a. með varmadælum, viðarkyndingu o.s.frv.
Til íbúðareigenda sem nú hafa niðurgreidda rafhitun og vilja taka upp umhverfisvæna orkuöflun er möguleiki á að sækja um styrk. Um er að ræða eingreiðslustyrk vegna aðgerða sem leiða til betri orkunýtingar við húshitun.