19. júní 2023
Fréttir
Opinn íbúafundur um stefnumótun Húnabyggðar í orku- og umhverfismálum verður haldinn í félagsheimilinu á Blönduósi fimmtudaginn 22.júní frá klukkan 18:00-20:00.
Við hvetjum alla sem áhuga hafa á því að vera með að taka þátt og við fögnum öllum hugmyndum sem þið mögulega hafið.
Einnig er öllum heimilt að senda hugmyndir til okkar á hunabyggd@hunabyggd.is (merkt “Stefnumótun”).