11. ágúst 2021
Fréttir
Leikskólinn Barnabær auglýsir eftir starfsmanni til afleysinga í eldhúsi og á deildum. Um er að ræða tímabundna ráðningu í 100% stöðu frá og með 1. september.
Nánari upplýsingar gefur Sigríður Helga, leikskólastjóri, í síma 455 4740.
Áhugasamir sendi inn umsókn á http://barnabaer.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn
Eða á netfangið barnabaer@blonduos.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst 2021.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur – Gleði – Virðing
Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum.
Þeir sem ráðnir eru til starfa í Leikskólanum Barnabæ á Blönduósi þurfa að undirrita heimild til að afla uplýsinga úr sakaskrá.