04. desember 2019
Tilkynningar
Áætlað er að söfnun á rúlluplasti fari fram 10. og 11. desember 2019.
- Þeir bændur sem óska eftir því að nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir að tilkynna það til skrifstofu Húnavatnshrepps á netfangið fridrik@hunavatnshreppur.is eða í síma 455 0010 fyrir klukkan 16:00 mánudaginn 9. desember 2019.
- Einnig verður tekið á móti áburðarpokum, taka þarf innri pokana úr og hafa þá sér.
- Rúlluplastið verður að vera án spotta, nets og jafnframt hreint.
Rúlluplastið verður ekki sótt til þeirra sem ekki tilkynna sig.
Hér má finna gagnlegar upplýsingar um frágang á rúlluplasti