Sú breyting varð um áramót að Sveitarfélagið Skagaströnd tók við rekstri Tónlistarskóla Austur Húnvetninga en skólinn var áður rekinn í byggðasamlagi Húnabyggðar og Skagastrandar.
Skólinn mun áfram þjónusta sama starfssvæði og rekstur fara fram með mjög svipuðum hætti.
Starfsmannahópinn skipa:
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir skólastjóri / tonlistarskoli@skagastrond.is
Eyþór Franzson Wechner kennari / eythor@skagastrond.is
Elvar Logi Friðriksson kennari / elvarlogi@skagastrond.is
Gunnar Ingi Jósepsson kennari / gunnaringi@skagastrond.is
Louise Price kennari / louiseprice@skagastrond.is
Hugrún Lind Pálsdóttir ræstitæknir
Enn er hægt að nálgast allar upplýsingar um skólann hér. Upplýsingar um reikninga má nálgast hjá Hugrúnu skólastjóra eða á skrifstofu sveitarfélagsins Skagastrandar í síma 452-2700. Reikningar birtast á island.is með nafn nemanda í skýringu.