15. september 2020
Tilkynningar
- Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnavatnssýslu og Trappa ehf. undirrituðu 2ja ára samning þann 10. september 2020.
- Markmiðið með samningnum er að efla talmeinaþjónustu í heimabyggð.
- Trappa mun nú sjá um greiningar og þjálfun barna í Austur Húnavatnssýslu en talmeinafræðingar munu koma reglulega til að sinna greiningum og sinna þjálfun í gegnum fjarskiptaforritið Kara Connect að mestu á skólatíma barna.
Á myndinni sjást Þórdís Hauksdóttir fræðslustjóri Austur-Húnavatnssýslu og Tinna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Tröppu við undirritun samningsins á Hilton Hóteli í Reykjavík.