Innviðaráðuneytið hefur formlega staðfest sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar og tekur sameiningin gildi 1. ágúst 2024. Tekur sveitarstjórn Húnabyggðar við stjórn hins sam­einaða sveitarfélags samdægurs og fer með stjórn þess til loka yfirstandandi kjörtímabils. Heiti hins sameinaða sveitarfélags skal vera Húnabyggð og mun samþykkt um stjórn og fundarsköp Húna­byggðar nr. 1181/2022, gilda fyrir hið sameinaða sveitarfélag.

 

Sjá tilkynningu Innviðaráðuneytis í Stjórnartíðindum hér: stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=de83c194-e015-42f6-bb84-cb9fa6e48c73

Getum við bætt efni þessarar síðu?