04. desember 2018
Fréttir
Átaksverkefni, Félagsþjónustu Austur - Húnavatnssýslu, Húnaþing vestra, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Lögreglunnar á Norðurlandi vestra, var ýtt úr vör, þann 4. desember 2018.
- Markmið átaksverkefnisins er að auka þekkingarmiðlun og bæta verklag til að taka á heimilisofbeldismálum.
- Veita þolendum og gerendum betri þjónustu.
- Vernda börn sem búa við heimilisofbeldi.
Það að Lögreglan og félagsmálayfirvöld á Norðurlandi vestra, taki höndum saman, gefur skýr skilaboð út í samfélagið um að ”ofbeldi á heimilum sé ekki liðið” og gerir okkur öll sterkari í því að takast á við þetta verkefni, svo að það skili meiri árangri.