09. desember 2019
Fréttir
- Almannavarnarnefndir Skagafjarðar og Húnavatnssýslna hefur lokið fundi vegna yfirvofandi óveðurs og lítur málið alvarlegum augum, enda er í fyrsta skipti hérlendis gefin út rauð viðvörun vegna veðurs.
- Lögreglan á Norðurlandi vestra biðlar til fólks að halda kyrru fyrir enda verður ekkert ferðaveður á morgun, búast má við víðtækum vegalokunum í umdæminu strax í fyrramálið.
- Þá er fólki einnig bent að huga sérstaklega vel að öllum lausamunum utandyra, svo sem ruslatunnum og öðru sem gæti ollið tjóni og eða skaða.
- Sjávarmál verður í hærra lagi og því eru smábátaeigendur beðnir um að huga að bátum sínum og festa þá vel.
- Allt skólahald í umdæminu, leik-, grunn- og framhaldsskólar, falla niður á morgun og á miðvikudag og öll íþróttamannvirki verða lokuð.
- Rafmagn gæti einnig raskast vegna veðurs.
- Gangi veðurspá að fullu eftir, þarf fólk að verða meðvitað um að það getur reynst miklum erfiðleikum bundið fyrir viðbragðsaðila að komast á vettvang og getur tekið langan tíma. Það þarf samt að sjálfsögðu að tilkynna öll tjón strax.
- Minnum á neyðarnúmerið: 1-1-2.
- Hjálpumst að og látum fréttirnar berast.
- Fylgist vel með fréttum og eins og fyrr segir haldið kyrru fyrir og verið heima!