05. janúar 2021
Fréttir
Hjálmar Sigurðsson hefur verið ráðinn launafulltrúi Blönduósbæjar. Hjálmar tekur við starfinu af Kristínu Ingibjörgu Lárusdóttur sem var ráðin Menningar-, íþrótta og tómstundafulltrúi Blönduósbæjar í lok síðasta árs. Hjálmar mun sjá um launavinnslu sveitarfélagsins ásamt öðrum almennum skrifstofustörfum. Hjálmar lauk námi í Hagfræði við Háskóla Íslands síðastliðið haust. Hann hefur starfað með námi sínu í tvö sumur hjá GAMMA CAPITAL MANAGEMENT, REYKJAVÍK og einnig áður í tvö sumur hjá embætti Sýslumannsins á Norðurlandi vestra.
Blönduósbær býður Hjálmar velkominn til starfa.