28. janúar 2021
Tilkynningar
- Sveitarstjórn Húnavatnshrepps, hélt 235. fund sinn miðvikudaginn 27. janúar 2021.
- Var fundurinn haldinn í gegnum Teams, fjarfundarbúnað.
- Meðal þess sem samþykkt var á fundinum var að breyta sorphirðudögum.
- Sorphirðudögum verður fjölgað um 3 (1. og 2. mars, 3. og 4. maí, 8. og 9. nóvember)
- Dagatal sveitarfélagsins verður prentað að nýju, vegna þessa breytinga og mistaka í fyrri prentun.
- Breytingar voru gerðar á gjaldskrá fyrir sorphirðu- og sorpeyðingargjöld.
- Samþykkt var að veita styrk úr Skógræktarsjóði Áshrepps til Búnaðarfélag Áshrepps vegna kaupa á afberkjara til nota í skógarvinnslu.
- Nánari upplýsingar má finna í fundargerð fundarins.