16. október 2019
Tilkynningar
- Námsstyrkur fyrir framhaldsskólanema
- Námsstyrkir eru ætlaðir fyrir framhaldsskólanema vegna haustannar 2019.
- Umsækjandi skal eiga lögheimili í Húnavatnshreppi þegar sótt er um styrk.
- Viðtakandi námsstyrks skal gera grein fyrir öllum breytingum á aðstæðum sem kunna að hafa áhrif á umsókn og mat á henni.
- Heimilt er að krefjast endurgreiðslu á námsstyrk hafi umsækjandi fengið hann ranglega greiddan.
- Upphæð styrks nemur kr. 50.000 fyrir önn.
Frestur til að skila umsóknum vegna haustannar er til 15. nóvember nk.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem nálgast má hér á heimasíðu Húnavatnshrepps.