Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að sporna við kyrrsetu og hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig meira í sínu daglega lífi. Stuðst er við ráðleggingar embættis landlæknis um hreyfingu sem segir að börn og unglingar þurfi að hreyfa sig minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir þurfi að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 21,4 mínútur daglega. Í Lífshlaupinu er miðað við 30 mín á dag fyrir 16 ára og eldri.

Reglubundin hreyfing stuðlar að bættum svefni, bættum lífsgæðum, dregur úr líkum á ýmsum sjúkdómum og styrkir hjarta- og æðakerfið

Lífshlaupið skiptist í þessa keppnisflokka:

Með Lífshlaups-appinu er einfalt að skrá sína hreyfingu á meðan á Lífshlaupinu stendur. Í smáforritinu er hægt að skrá og sjá alla hreyfingu viku aftur í tímann. Þar er einnig hægt að lesa hreyfingu beint úr Strava. Það er þó rétt að benda á að það þarf að fara á vefsíðu Lífshlaupsins til þess að stofna aðgang og til þess að stofna lið/ganga í lið, en eftir að það er búið er hægt að skrá sig inn í gegnum smáforritið og skrá alla hreyfingu þar. Smáforritið finnst bæði í App Store (iOS) og í Play Store (Android) undir heitinu „Lífshlaupið“. Einnig er hægt að nálgast það með því að smella hér ef þú ert í Iphone en hér ef þú ert að nota Android.

Skráningarferlið er einfalt og fínar leiðbeiningar má finna r. Leiðbeiningar á ensku eru hér

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið gefa Linda Laufdal og Þórarinn Alvar Þórarinsson, starfsmenn Fræðslu- og almenningssviðs ÍSÍ á netfanginu lifshlaupid@isi.is eða í síma 514-4000

Á meðan Lífshlaupið stendur yfir eru heppnir þátttakendur dregnir út alla virka daga í þættinum Morgunverkin á RÁS 2, og fá þeir heppnu gjafabréf frá Móðir náttúru. Á meðan grunn- og framhaldsskólakeppnin stendur yfir fá nokkrir heppnir bekkir í gunnskólakeppninni kókómjólk og nokkrir heppnir nemendur í framhaldsskólum fá Hleðslu.
Átta þátttakendur eru svo dregnir út í myndaleik Lífshlaupsins sem fá veglega vinninga frá eftirfarandi samstarfsaðilum:
Mjólkursamsölunni, Skautahöllinni, Klifurhúsinu, Unbroken, World Class, Primal og Lemon

Taktu þátt og vertu fyrirmynd í hreyfingu fyrir fólkið í kringum þig www.lifshlaupid.is

Getum við bætt efni þessarar síðu?