Leikskólinn Barnabær, Blönduósi auglýsir lausar stöður frá og með 8. ágúst 2020.
Á leikskólanum Barnabæ, Blönduósi fer fram fjölbreytt og skemmtilegt uppeldisstarf með börnum á aldrinum 8 mánaða til 6 ára. Unnið er samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla 2011 og við leggjum áherslu á að námið fari fram í gegnum leik. Okkar vantar hressa og metnaðarfulla einstaklinga sem hafa áhuga á að vinna gefandi, krefjandi og skemmtilegt starf með börnum. Verið er að innleiða jákvæðan aga
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2020
Frekari upplýsingar gefur Sigríður Helga Sigurðardóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 452 4530 og á netfanginu: helga@blonduos.is
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu leikskólans: http://barnabaer.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn