05. mars 2020
Tilkynningar
- Leik- og grunnskólar í Austur Húnavatnssýslu, Húnaþingi vestra og leikskóli Strandabyggðar hafa um nokkurt skeið unnið að læsisstefnu skólanna.
- Markmiðið með sameiginlegri læsisstefnu var að samræma kennsluhætti og námsmat og efla læsi.
- Unnin var heildstæð stefna af fulltrúum allra leik- og grunnskóla á svæðinu ásamt fræðslustjóra Austur Húnavatnssýslu.
- Áhersla var lögð á að allir fengju að hafa áhrif á mótun stefnunnar og hún unnin þvert á skólastig.
- Út frá þeirri vinnu var gerður bæklingur með helstu áherslum úr stefnunni.