Húnabyggð auglýsir eftir aðilum sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratenginu fyrir heimili og fyrirtæki á Blönduósi á árunum 2024-2026 eða hafa áhuga á að tengja þau staðföng á Blönduósi sem Fjarskiptasjóður metur styrkhæf skv. skilmálum sjóðsins frá 2. júlí 2024 gegn því að þiggja þann styrk sem Fjarskiptasjóður býður, sjá nánar hér.
Þau fjarskiptafyrirtæki sem hafa staðfest áform um slíkt eða áhuga á að tengja viðkomandi staðföng skv. ofangreindum forsendum eru beðin um að senda upplýsingar þar um á netfangið hunabyggd@hunabyggd.is fyrir 20. ágúst 2024.

Getum við bætt efni þessarar síðu?