03. mars 2020
Tilkynningar
- Nú er að hefjast könnun meðal allra íbúa 18 ára og eldri í sveitum og öðru strjálbýli á Íslandi, en raddir þeirra heyrast stundum illa í opinberri umræðu á Íslandi.
- Þessi könnun er hluti af stærra rannsóknarverkefni Byggðastofnunar og háskólanna um byggðafestu og búferlaflutninga. Aðrar kannanir ná til íbúa í stórum og litlum þéttbýliskjörnum.
- ATHUGIÐ: Þessi könnun nær ekki til íbúa í þorpum eða litlum byggðakjörnum á strjálbýlum svæðum - þeirri könnun er nú þegar lokið.
- Við værum AFSKAPLEGA þakklát ef þið sem búið í sveit eða strjálbýli gætuð hjálpað okkur með því að taka þátt í þessari könnun - og með því að hvetja vini og vandamenn til að taka þátt!