19. febrúar 2022
Fréttir
Í dag er kosið um sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps
Á Blönduósi er kosið í Íþróttamiðstöðinni klukkan 10-20.
Talning atkvæða fer fram á sama stað og hefst eftir að kjörstöðum lokar. Úrslit verða birt á Húnahorninu, á vef Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps, og á vef samstarfsnefndarinnar.
Rétt til að kjósa hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá í viðkomandi sveitarfélagi.