Húnabyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Húnabyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.

Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Húnabyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Húnabyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Mælst verður til þess að handhafar gjafabréfa noti þau á tímabilinu 15.desember 2024 - 15.febrúar 2025. 

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi sé með starfsemi í Húnabyggð.

Skráningarfrestur er til og með 20.nóvember 2024

Tekið er við skráningu á netfangið kristin@hunabyggd.is

Nánari upplýsingar veitir Kristín Ingibjörg Lárusdóttir Menningar- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar á netfangið kristin@hunabyggd.is eða í síma 455-4700

Getum við bætt efni þessarar síðu?