Húnabyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Húnabyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.
Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Húnabyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Húnabyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Mælst verður til þess að handhafar gjafabréfa noti þau á tímabilinu 15.desember 2022 - 15.febrúar 2023 en þau falla þó ekki úr gildi á árinu.
Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi sé með starfsemi í Húnabyggð.
Skráningarfrestur er til og með 2.desember.
Tekið er við skráningu á netfangið hunabyggd@hunabyggd.is
Nánari upplýsingar veitir Kristín Ingibjörg Lárusdóttir Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar á netfangið kristin@hunabyggd.is eða í síma 455-4700