Laus er til umsóknar 40% staða konu sem sundlaugarvörður við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Um er að ræða starf sem unnið er í vaktavinnu samkvæmt vaktaplani. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Öryggisgæsla
  • Baðvarsla í klefum
  • Afgreiðsla og þjónusta við gesti
  • Þrif

Menntunar- og hæfniskröfur:

  •  Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.
  • Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem og fullorðna.
  • Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg.

Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda.

Nánari upplýsingar gefur Katrín Benediktsdóttir, verkefnastjóri í síma 455-4700 og í tölvupósti á netfangið katrin@hunabyggd.is.

Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar 2025, umsóknum skal skilað á netfangið katrin@hunabyggd.is

Getum við bætt efni þessarar síðu?