Íþróttamiðstöðin á Blönduósi auglýsir eftir kvenmanni til starfa í tímabundið starf frá 1. desember 2018 til 1. september 2019.
Um er að ræða 80% starf. Starfið er vaktavinna sem felur m.a. í sér vinnu við ræstingar, afgreiðslu, símavörslu, öryggisgæslu og annað það sem til fellur. Fjölbreytt starf þar sem mikil áhersla er lögð á mannleg samskipti bæði við fullorðna og börn.
Æskilegir eiginleikar:
- Rík ábyrgðarkennd og áreiðanleiki
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Snyrtimennska og dugnaður til að fylgja henni eftir
- Skipulagshæfileikar og festa
- Ánægju af því að vinna með börnum og unglingum
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð a.m.k 18 ára aldri, búi yfir góðri sundkunnáttu og standist sundpróf laugarvarða.
Fræðsla í skyndihjálp og öryggisreglum íþróttamiðstöðvarinnar fer fram árlega svo og sundpróf laugarvarða.
Vakin er athygli á því að Íþróttamiðstöðin á Blönduósi er tóbakslaus vinnustaður.
Umsóknarfrestur er til 12. nóvember n.k. og skal senda umsóknir til forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi á netfangið robert@imb.is.
Allar nánari upplýsingar veitir Róbert í síma 452-4178