29. ágúst 2023
Fréttir
Íþróttamiðstöðin á Blönduósi óskar eftir að ráða karlmann í 100% starfshlutfall.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfið er vaktavinna sem felur m.a. í sér:
- Umsjón og eftirlit með búnings- og baðklefum, íþrótta- og sundlaugarmannvirkjum og öðru því sem mannvirkinu tilheyrir.
- Vinna við ræstingar, afgreiðslu, símavörslu, öryggisgæslu og annað það sem til fellur.
- Aðstoða íþróttakennara og þjálfara eftir þörfum og sjá til þess að þeir geti nálgast áhöld og búnað sem þarf á hverjum tíma. - Eftirlit tækja og áhalda þannig að búnaður sé í lagi.
- Starfsmaður þarf að hafa áhuga og skilning á íþróttum og æskulýðsstarfi, vera þjónustulipur með góða framkomu, og hafa gaman af að starfa með börnum, unglingum og öðrum þeim sem mannvirkið stunda.
- Starfa að öðru leyti samkvæmt almennum verklagsreglum, verklýsingum og fyrirmælum frá forstöðumanni Íþróttamiðstöðvar.
- Annað það sem starfsmanni kann að vera falið og tengist starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar.
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
- Tölvukunnátta
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið námskeiði í skyndihjálp og geta staðist sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum. Íþróttamiðstöðin á Blönduósi sér til þess að allir fái þetta námskeið og geti tekið hæfnispróf.
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2023.
Umsóknir sendist á netfangið: hunabyggd@hunabyggd.is.
Allar upplýsingar á skrifstofu Húnabyggðar í síma: 455-4700 og á netfangið hunabyggd@hunabyggd.is.