20. janúar 2022
Fréttir
Blönduósbær vill vekja athygli á því að námsmenn, 15 - 17 ára, þurfa að sækja um húsnæðisstuðning fyrir hverja skólaönn. Umsóknir vegna húsnæðisstuðnings skulu hafa borist eigi síðar en 25. janúar á netfangið: blonduos@blonduos.is eða á skrifstofu Blönduósbæjar.
Umsókn þarf að fylgja:
- Útfyllt umsóknareyðublað, sem hægt er að nálgast hér.
- Þinglýstur húsaleigusamningur til a.m.k 6 mánaða
- húsaleigusamningur þarf ekki að vera þinglýstur ef um er að
ræða heimavist
- þeir sem skiluðu húsaleigusamningi vegna haustannar 2021
þurfa ekki að skila honum aftur nema um breyttan húsaleigusamning
sé að ræða
Staðfesting skóla um nám ungmenna (á ekki við um nemendur í FNV)
Húsnæðisstuðningur greiðist mánaðarlega fyrir mánuðinn á undan.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast inni á vef Blönduósbæjar, www.blonduos.is eða á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar www.hms.is
f.h. skrifstofu Blönduósbæjar
Elfa Björk Sturludóttir (elfa@blonduos.is)